Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2015
Ábyrgð Hjúkrunar fólks og lækna.
7.11.2015 | 13:05
Ég er lærður flugvirki og hef starfað sem slíkur í 35 ár. Ef ég geri mistök í starfi mínu sem valda dauða eða slysum á fólki þá er ég ábyrgur og gæti endað í fangelsi og þurft að sæta háum sektum, það er að segja, ef það sannast að ég, með meðvituðum aðgerðum í starfi, trassaskap eða kæruleysi, hafi ollið slysinu.
Ef á annað borð sé sannað að ég hafi þurft að framkvæma vinnu mína undir álagi eða erfiðum kringumstæðum vegna lélegs vinnu umhverfis, til dæmis óhóflegur vinnutími,of mikill þrýstingur, ekki rétt verkfæri eða aðstaða, þá fellur ábyrgðin á vinnuveitanda alfarið.
Ef sömu reglum væri beytt í meðferð sjúklinga á sjúkrahúsum hér á landi og gert er í flugheiminum, þá væri í þessu tilfelli ábyrgðin öll hjá Landspítalanum og ætti að bera allan kostnað vegna lögsóknar í svona mistaka málum.
Ég varð persónulega fyrir því að missa barnabarn mitt aðeins 8 ára gamalt vegna mistaka hjúkrunarfólks á Landsspítala og óska engum að komast í þá aðstöðu hvort heldur aðstandendum að missa sína nánustu eða hjúkrunarfólks að verða valdur af dauða einhverns vegna lélegs starfsumhverfis.
Landsspítali hlýtur að vera tryggður fyrir svona málum og ætti möglunarlaust að hlíða úrskurðun dómstóla.
Þetta hefði getað verið ég | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)